Í byrjun árs 2021 kynnti MARC INBANE til leiks nýja vöru - lúxus sturtufroðu með ljúfum ilm af bóndarósum og bleikum pipar. Sápan sló heldur betur í gegn og hefur nú nýr ilmur bæst við vöruúrvalið.
Sturtufroða N°09
N°09 er sturtufroða með ríkulegum ilm af hvítum túlípönum, sandelviði og Amber. Sturtusápan nærir og mýkir húðina og er tilvalin til að undirbúa hana áður en nota á MARC INBANE brúnkusprey eða brúnkufroðu. Formúlan er vegan og án parabena, sílíkona og súlfata.
Sturtufroðan er einstaklega mjúk og nærandi. Hún freyðir samstundis, tryggir jafnvægi á raka húðar og má einnig nota sem raksápu.
Hér getur þú lesið allt um nýjustu vöruna frá MARC INBANE og hér getur þú séð lista yfir sölustaði.