Hvenær er brúnkan orðin þurr? Hvenær er í lagi að klæða sig og hvenær er í lagi að fara í ræktina?
Náttúrulega brúnkuspreyið, Hýalúronsýru brúnkuspreyið og Náttúrulega brúnkufroðan frá MARC INBANE þorna öll á 10-15 mínútum. Það er akkurat passlegur tími til að bursta tennur, nota tannþráð og etv skella hárbursta í gegn um makkann, en þeir sem eru á extra mikilli hraðferð geta flýtt ennþá meira fyrir með því að nota hárblásara!
Eftir þessar 10-15 mínútur er brúnkan orðin þurr og þér óhætt að klæða þig. Við mælum hins vegar með að fara ekki á æfingu eða í sturtu fyrstu þrjá tímana þar sem brúnkan þarf tíma til að síast inn í húðina og framkalla lit.

Vörurnar frá MARC INBANE eru vegan og án sílikona og parabena. Þær laga sig að þínum húðlit og gefa fallega, náttúrulega og jafna brúnku á öruggan hátt!